Nú er komið að því sem allir hafa verið að bíða eftir þ.e Árshátíðin:) Hún verður haldin þann 15 maí og verður staðsetning tilkynnt síðar. Sjáum vonandi sem flesta.
Hægt er að skrá sig vinstra megin á síðunni.
Jæja þá er komið að því að sjá styrkleikann í hópnum:)
Á föstudaginn 30 apríl verður slegið til keppni á meðal viðskiptavina og þjálfara um 3 greinar
þ.e hversu margar armbeygjur hver getur gert á 2 mínútum,
hversu mörg Burpees á 2 mínútum og
hver getur haldið plankastöðunni lengst.
Áhugasamir skrá sig í þá grein sem hann vill taka í afgreiðslunni og eru vegleg VERÐLAUN í boði fyrir sigurvegarana:)
Sýnum nú hvað í okkur býr og skráum okkur til leiks.
Í vor og sumar verður boðið upp á fjallgöngur fyrir viðskptavini Heilsuakademíunnar og er það að kostnaðarlausu. Fyrirhugað er að labba á sunudögum kl. 13.30 ef næg þáttaka fæst en tíminn getur verið sveigjanlegur. Fyrsta gangan verður farin sunnudaginn 2.maí og tekið er við skráningum í afgeiðslu. Göngurnar eru hugsaðar sem undirbúningur fyrir stærri göngur sem verða farnar í sumar s.s Fimmvörðuhálsinn og Laugaveginn. Frábær leið til að njóta fjallaloftsins og útiverunnar. Hægt er að hafa samband við Tobbu eða Þórunni í afgreiðslunni eða í símum 8484984 eða 8665801