TRX opnu tímarnir í Heilsuakademíunni verða sífellt vinsælli en á eftirfarandi link má sjá myndband þar sem gott er að sjá út á hvað þessir vinsælu tímar ganga út á:
TABATA námskeið sem hefst í næstu viku verður á mánudögum og miðvikudögum kl. 18:00 en ekki á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 19:00. Einnig verður morgunnámskeið í boði kl. 6:00 á þriðjudögum og fimmtudögum.
Skráningar í fullum gangi!
Opið hús Heilsuakademíunnar verður haldið laugardaginn 5. september Heilsuakademían verður opin gestum og gangandi laugardaginn 5. september á milli 8-17. Boðið verður upp á prufutíma m.a. í Herþjálfun (9:00), Tabata (10:00), Tarzan (11:00) og TRX (10:00 og 11:00) sem er nýjung í námskeiðaflóru Heilsuakademíunnar.
Frír aðgangur verður í tækjasal allan daginn og léttar veitingar í boði Hreystis.
Vonumst til að sjá sem flesta
Kveðja starfsfólk Heilsuakademíunnar
Haustið í Heilsuakademíunni - Námskeið hefjast 7. september!
Haustdagskrá Heilsuakademíunnar hefst með pompi og prakt þann 7. september og skráningar á námskeið haustsins eru í fullum gangi hér vinstra megin á síðunni og í síma 594-9666.
Í haust bjóðum við upp á fjölmargar nýjungar s.s. TRX-æfingakerfið og TABATA. Í Heilsuakademíunni ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi.
Einnig munum við gera okkur glaðan dag og m.a. fagna síbatnandi aðkomu og endurreisnar Egilshallarinnar með hinum árlega Haustfagnaði sem verður haldinn 12. sept.
Höldum okkur í góðu formi í vetur í Heilsuakademíunni!
Nú er endurreisn Egilshallar hafin með framkvæmdum á bílaplani og er áætlun að búið verði að malbika bílaplanið fyrir utan í Egilshöll í lok september.
Heilsuakademían fagnar þessum stóra áfanga mikið og hlakkar til að taka þátt í endurreisn Egilshallar í vetur!