desember 09, 2008
Kynningartími í Jump Fit
Kynningartími í Jump Fit

Í janúar mun Heilsuakademían byrja með námskeið í Jump Fit. Jump Fit er æfingakerfi með sippuböndum þar sem sippað er eftir taktfastri tónlist. Frábær leið að komast í gott form.

Sérstakur kynningartími verður í Jump Fit þriðjudaginn 16. desember kl. 17:30.
Við hvetjum alla til að koma og prófa þetta frábæra æfingakerfi.
meira
desember 01, 2008
Jólaspinning

Jólaspinning

Frábær jólaspinningtími verður á fimmtudaginn 11. desember kl. 17:10.
Íris Huld og Krissi verða í jólaskapi og koma öllum í gírinn fyrir jólin.


meira
Nóvember 16, 2008
Næstu námskeið hefjast 1. desember

Næstu námskeið hefjast 1. desember

Sérstakt tilboð verður á næstu námskeiðum sem hefjast þann 1. desember. Tímabil námskeiðanna er 6 vikur eins og vanalega en kennt verður í rúmar 4 vikur þar sem frí er milli jóla- og nýárs. Verðið á námskeiðunum er aðeins 13.990 kr. og er skráning hafin hér á síðunni og í síma 594-9666. 
Við hvetjum alla til að halda sér í góðu formi í desember og skella sér á námskeið.

Námskeið á nýju ári hefjast svo þann 12. janúar.


meira
Nóvember 13, 2008
Íslenska kvennalandsliðið
Heilsuakademían gefur íslenska kvennalandsliðinu kort í tækjasal

Í tilefni af frábærum árangri íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu hefur Heilsuakademían gefið landskonum Íslands kort í tækjasal Heilsuakdemíunnar fram að EM 2009.

Ljóst er að mikill undirbúningur verður hjá stelpunum fram að EM og er þetta kærkominn stuðningur í þeim undirbúningi.
meira
Nóvember 12, 2008
Nýjar myndir komnar á netið

Nýjar myndir komnar á netið

Nýjar myndir frá Hermanni ársins og haustfagnaði Heilsuakademíunnar eru komnar á netið. Sjá undir myndir hér efst á síðunni.


meira
Fyrri frétt 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 32 33 34 35 36 37 38 39 40 41 42 43 44 45 Næsta frétt