Bjóddu tveimur vinum frítt í Heilsuakademíuna í ágúst
Allir meðlimir Heilsuakademíunnar mega bjóða tveimur vinum sínum frítt í tvær vikur í tækjasal Heilsuakademíunnar í ágúst. Meðlimirnir verða að mæta með vinum sínum til þess að skrá þá. Hægt er skrá út ágúst.
Næstu Sund- og leikjanámskeið fyrir 5 - 12 ára börn hefjast 21. júlí
Heilsuakademían býður upp á íþrótta- og leikjanámskeið í Egilshöll, Sund- og leikjanámskeið í íþróttamiðstöðinni Lækjarhlíð í Mosfellsbæ og Sund- og leikjanámskeið í íþróttahúsi Lækjarskóla í Hafnarfirði í allt sumar.
Námskeiðin eru fyrir alla hressa krakka sem vilja hreyfa sig og skemmta sér undir leiðsögn menntaðra og reyndra þjálfara. Nánari upplýsingar eru hér vinstra megin á síðunni.
Skráning í fullum gangi hér á heimasíðunni og í síma 594-9666.
Reykjavíkurmaraþon Heilsuakademían ætlar að gefa öllum þeim sem hlaupa Reykjavíkurmaraþonið þann 23. ágúst bol merktan Heilsuakademíunni.
Við ætlum að hlaupa í samfloti og munum hittast fyrir hlaupið og leggja af stað saman.
Þeir sem ætla að hlaupa í maraþoninu endilega skrá sig hér á netinu svo hægt sé að sjá fjöldann.
Ný og breytt snyrtistofa hefur opnað í Heilsuakademíunni. Í tilefni af því verður 20% afsláttur af öllum meðferðum í júlí. Sjá nánari upplýsingar hér á síðunni undir snyrtistofa.
Snyrtifræðingar eru Guðrún og Erla sem eru með margra ára reynslu í þessu fagi.
Nánari upplýsingar um þjónustu og verð í síma: 594-9666