Júní 30, 2008
Ný námskeið að hefjast

Ný námskeið hefjast 7. júlí
Skráning á næstu námskeið sem hefjast 7. júlí er í fullum gangi. Hægt er að skrá sig undir hverju námskeiði fyrir sig hér vinstra megin á síðunni eða í síma 594-9666. Nú er frábært sumartilboð í gangi þar sem öll 4 vikna námskeið kosta aðeins 10.990 kr.

 


meira
Júní 24, 2008
Body Attack er komið í sumarfrí
Body attack er komið í sumarfrí og hefst aftur í haust
meira
Júní 19, 2008
Laugarvegsganga
Laugavegsganga

Heilsuakademían mun ganga Laugaveginn helgina 12, 13. og 14. júlí.
Lagt verður af stað frá Heilsuakademíunni laugardaginn 12. júlí og er gist í skálum. Laugardaginn 13. júlí verður gengið allan daginn og síðan gist í Þórsmörk. Lagt verður af stað heim aftur þann 14. júlí.

Við hvetjum alla þá sem hafa áhuga á að ganga með skemmtilegum hóp þessa einstöku leið að skrá sig sem fyrst hér á síðunni eða í síma 594-9666. Athugið að einungis takmarkaður fjöldi kemst í gönguna og því betra að skrá sig sem fyrst.

Greiðsla fer fram við skráningu og staðfestir þátttöku fyrir 7. júlí.
Verð: 14.500 kr. (innifalið: fararstjórn, rútuferð og skálagisting báðar næturnar).
meira
Júní 16, 2008
Næstu Sund- og leikjanámskeið hefjast 23. júní

Næstu Sund- og leikjanámskeið fyrir 5 - 12 ára börn hefjast 23. júní 

Heilsuakademían býður upp á íþrótta- og leikjanámskeið í Egilshöll, Sund- og leikjanámskeið í íþróttamiðstöðinni Lækjarhlíð í Mosfellsbæ og Sund- og leikjanámskeið í íþróttahúsi Lækjarskóla í Hafnarfirði í allt sumar. 

Námskeiðin eru fyrir alla hressa krakka sem vilja hreyfa sig og skemmta sér undir leiðsögn menntaðra og reyndra þjálfara. Nánari upplýsingar eru hér vinstra megin á síðunni.

Skráning í fullum gangi hér á heimasíðunni og í síma 594-9666.


meira
Júní 09, 2008
Hjólaferð Heilsuakademíunnar 14. júní

Hjólaferð Heilsuakademíunnar 14. júní 

Laugardaginn 14. júní verður haldið í hjólaferð frá Heilsuakademiunni. Lagt verður að stað kl: 9.30 og verður hjólað til Þingvalla og tilbaka að Heilsuakademiunni. Þetta er skemmtileg hjólaleið og ætti að henta öllum. Áætlað er að ferðin taki ca. 5 klst.

Ferðin kostar ekki neitt en nauðsynlegt er að skrá sig hér á netinu eða í afgreiðslu Heilsuakademíunnar fyrir föstudaginn 13. júní

Þeir sem vilja ná forskoti á sæluna eru velkomnir í spinningtíma á þriðjudags- og fimmtudagsmorgnum kl. 6:00 hjá Krissa power.


meira
Fyrri frétt 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 32 33 34 35 36 37 38 39 40 41 42 43 44 45 Næsta frétt