Maí 26, 2008
Sund- og leikjanámskeið fyrir 5 - 12 ára börn í allt sumar!

Sund- og leikjanámskeið fyrir 5 - 12 ára börn í allt sumar!

Heilsuakademían býður upp á íþrótta- og leikjanámskeið í Egilshöll, Sund- og leikjanámskeið í íþróttamiðstöðinni Lækjarhlíð í Mosfellsbæ og Sund- og leikjanámskeið í íþróttahúsi Lækjarskóla í Hafnarfirði í allt sumar. 

Námskeiðin eru fyrir alla hressa krakka sem vilja hreyfa sig og skemmta sér undir leiðsögn menntaðra og reyndra þjálfara. Nánari upplýsingar eru hér vinstra megin á síðunni.

Fyrstu námskeiðin byrja 9. júní. Skráning hafin.

 


meira
Maí 19, 2008
*NÝTT*NÝTT*NÝTT*NÝTT*NÝTT*
*NÝTT*NÝTT*NÝTT*NÝTT*NÝTT*

Gymstick Nordic Walking-stafir og styrkur
er áhrifaríkt stafagöngunámskeið þar sem áherslan er lögð á þol- og styrktaræfingar í senn úti undir berum himni. 

Gymstick Nordic Walking stafirnir eru ekki bara einungis stafir. Á örfáum sekúndum getur þú breytt stöfunum í fjölnota  líkamsræktartæki einungis með því að draga teygjur út úr stöfunum. Þetta gefur þér kost á að stunda þol- og styrktarþjálfun hvar sem er og hvenær sem er!


Fyrstu námskeið hefjast mánudaginn 9. júní
Kennarar á námskeiðunum eru: Eygló Rós og Íris Huld

meira
Maí 05, 2008
Sumartilboð í tækjasal

Sumartilboð í tækjasal

Heilsuakademían býður upp á sumartilboð í tækjasal á 14.990 sem gildir til 31. ágúst.
Því fyrr sem þú kemur því lengri tíma færð þú.

Opnir tímar sem í boði eru:

mán: Spinning 6:00, BodyPump 17:00
þri: BodyAttack 6:00, MRL 18:00
mið: BodyPump 17:00
fim: Þrekhringur 6:00, Spinning 17:30, MRL 18:00
lau: BodyPump 10:30

Vertu með í Heilsuakademíunni í sumar


meira
Maí 04, 2008
Myndir frá Þrekmeistaranum

Myndir frá Þrekmeistaranum

Nýjar myndir inn eru komnar inn á netið frá Þrekmeistaranum á Akureyri




meira
Apríl 22, 2008
Sumarnámskeið

Sumarnámskeið Heilsuakademíunnar hefjast 13. maí

Skráning er hafin á sumarnámskeið Heilsuakademíunnar en um er að ræða sannkallaða sumarsprengju þar sem 4 vikna námskeið eru aðeins á 10.990 kr.

Fyrstu námskeiðin hefjast þann 13. maí og svo verða námskeiðin á 4 vikna fresti.

Vertu í frábæru formi með Heilsuakademíunni í sumar.
Auk þess verða ýmsar uppákomur í sumar eins og göngur, hlaupahópar og útilegur.

Skráning er hafin hér vinstra megin á síðunni og í síma 594-9666.


meira
Fyrri frétt 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 32 33 34 35 36 37 38 39 40 41 42 43 44 45 Næsta frétt