Apríl 14, 2008
Þrekmeistarinn 2008

Þrekmeistarinn 2008

Keppni í Þrekmeistaranum verður haldin á Akureyri helgina 19.-20. apríl og ætla nokkur lið frá Heilsuakademíunni að mæta á svæðið og taka þátt.

Fjöldi áhangenda ætla einnig að mæta og við hvetjum áhugasama til að mæta á keppnina og hvetja sitt fólk áfram.


meira
Apríl 13, 2008
Nýtt Breaknámskeið hefst 23. apríl
Nýtt Breaknámskeið hefst 22. apríl í Egilshöll

Nýtt Breaknámskeið fyrir 6-12 ára börn hefst 22. apríl en það er Natasha sem hefur umsjón með Breakdansnámskeiðum hjá Heilsuakademíunni.
Námskeiðin eru alla þriðjudaga kl. 18:00 og standa yfir til 3. júní. Skráning hafin!
meira
Apríl 08, 2008
Árshátíð
Árshátíð Heilsuakademíunnar

Árshátíð Heilsuakademíunnar heppnaðist frábærlega en það var Anna Flass sem var veislustjóri og hélt uppi stuðinu eins og henni er einni lagið. Jón Sigurðsson kom og spilaði nokkur lög og var hreint út sagt frábær en það var síðan Rut Reginalds sem endaði kvöldið og spilaði fyrir dansi.

Við þökkum öllum þátttakendum fyrir frábært kvöld en myndir frá árshátíðinni koma innan tíðar á síðuna.
meira
Mars 13, 2008
Ný námskeið hefjast 31. mars

Ný námskeið að hefjast hjá Heilsuakademíunni

Ný námskeið hefjast dagana 31. mars og 1. apríl. Skráning á námskeiðin er í fullum gangi hér vinstra megin á síðunni og í síma 594-9666


meira
Mars 12, 2008
Árshátíð Heilsuakademíunnar

Árshátíð Heilsuakademíunnar

Árshátíð Heilsuakademíunnar verður haldin þann 5. apríl í Egilshöll og hefst kl. 19:30.

Allir þátttakendur Heilsuakademíunnar (og makar) eru velkomnir en í boði er fordrykkur, hlaðborð og frábær skemmtiatriði. Gleði og gaman mun einkenna kvöldið.

Nauðsynlegt er að skrá sig og greiða fyrir 1. apríl í afgreiðslu Heilsuakademíunnar eða hér vinstra megin á síðunni. Verð: 4.500 kr. Greiðsla staðfestir komu.

Vonumst til að sjá sem flesta.
Starsfólk Heilsuakademíunnar


meira
Fyrri frétt 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 32 33 34 35 36 37 38 39 40 41 42 43 44 45 Næsta frétt