Fit-Pilates er leikfimi fyrir alla sem vilja sjá línurnar verða flottari. Þjálfar alla kviðvöðva, innri og hliðar kviðvöðva, vöðva neðra baks, vöðva umhverfis hryggsúluna, lærvöðva að innan og utan, mjaðmir og rassvöðva. Þegar þessir vöðvar hafa styrkst er stoðkerfi líkamans komið með meiri stuðning. Þá uppgötvar fólk nýjan og áður óþekktan styrk og jafnvægi sem nýtist vel í betri líkamsstöðu í daglega lífinu og í öðrum íþróttagreinum.
Fólk fær ekki aðeins meiri orku, heldur einnig betri vörn gegn meiðslum vegna fleiri virkra vöðva, betra jafnvægis og meiri liðleika. Frábært æfingakerfi.
Þú getur byrjað í tímum þegar þér hentar!