Tímabil námskeiðis: 27 febrúar 2010 - 10 apríl 2010
Dagar námskeiðis / Tímar námskeiðis:
Laugardagur (11:00)
Verð námskeiðis: 7.990 kr.
Fjöldi þáttakanda: 20
Lýsing námskeiðis:
Tarzan námskeiðin eru fyrir hressa krakka á aldrinum 5 -10 ára.
Heilsuakademían er með sérútbúinn Tarzan völl þar sem hressir krakkar geta klifrað, hoppað, hangið og farið í hina ýmsu leiki undir leiðsögn tveggja menntaðra þjálfara með mikla reynslu.
Heilsuakademían er aðili að Frístundakorti ÍTR. Námskeiðin standa yfir í 6 vikur en ef frístundakortið er nýtt þá þarf að taka tvö námskeið í röð eða 12 vikur.