| Lýsing námskeiðis: |
Dans - Dansskóli Birnu Björns - FREESTYLE - JASSBALLET - HIP HOP - SÖNGLEIKJADANS
Dansskóli Birnu Björns býður upp á frábært dansnám í Egilshöll þar sem áhersla er lögð á faglega kennslu. Aðalgrunnurinn er jassballett og tækniæfingar, styrktar og liðleikaþjálfun ásamt kennslu í mismunandi dansstílum t.d. jass, street-jass, hip hop, freestyle, söngleikjadansi o.fl. Einnig er lögð mikil áhersla á leikræna tjáningu sviðsframkomu og túlkun.
Nemendur skólans eru margfaldir Íslandsmeistarar í freestyle dansi svo árum skiptir. Allir nemendur koma fram á glæsilegri nemendasýningu í Borgarleikhúsinu. Kennarar skólans eru allir danshöfundar, atvinnudansarar með mikinn metnað og kunnáttu.
Heilsuakademían er aðili að Frístundakorti ÍTR.
Kennarar: Sif Elíasdóttir og Vigdís Sverrisdóttir |