Eitt Líf - börn yfir kjörþyngd
Eitt L.Í.F. 9-13 ára 16:00 þri, fim. 12. jan. - 17. feb.
Kennarar:
Staður námskeiðis: Egilshöll
Tímabil námskeiðis: 12 janúar 2010 - 17 febrúar 2010
Dagar námskeiðis / Tímar námskeiðis:   
Þriðjudagur (16:00)
Fimmtudagur (16:00)
Verð námskeiðis: 12.500 kr.
Fjöldi þáttakanda: 25
Lýsing námskeiðis:   
LÍFSSTÍLL-LÍKAMSRÆKT-ÍMYND FRÆÐSLA-FÉLAGSSKAPUR

EITT L.Í.F eru skemmtileg og uppbyggileg lífsstílsnámskeið fyrir börn á aldrinum 9-13 ára sem eru yfir kjörþyngd. Námskeiðin henta þeim sem hafa ekki fundið sig í almennu hóp- eða einstaklings íþróttum en vilja hins vegar stunda líkamsrækt utan skóla og skemmta sér með jafningjum.

Heilsuakademían býður upp á einstaklingsmiðaða þjálfun í fámennum hópum, stuðning og fræðslu. Námskeiðið verður í umsjá íþróttafræðings sem sér um hreyfiþáttinn og fræðslu þátttakenda námskeiðisins og foreldra.

Námskeiðið felur í sér: Þjálfun í 6 vikur. Tveir tímar í viku, klukkustund í senn, sami tími, sami kennari. Kennsla og stuðningur við rétt fæðuval. Fræðsla og umræðufundir. Líkamsrækt og leikir innanhúss og utan sem og í sölum Heilsuakademíunnar í Egilshöll.

Námskeiðin standa yfir í 6 vikur en ef frístundakortið er nýtt þá þarf að taka tvö námskeið í röð eða 12 vikur. 

Heilsuakademían er aðili að Frístundakorti ÍTR