LÍFSSTÍLL-LÍKAMSRÆKT-ÍMYND FRÆÐSLA-FÉLAGSSKAPUR
EITT L.Í.F eru skemmtileg og uppbyggileg lífsstílsnámskeið fyrir börn á aldrinum 9-13 ára sem eru yfir kjörþyngd. Námskeiðin henta þeim sem hafa ekki fundið sig í almennu hóp- eða einstaklings íþróttum en vilja hins vegar stunda líkamsrækt utan skóla og skemmta sér með jafningjum.
Heilsuakademían býður upp á einstaklingsmiðaða þjálfun í fámennum hópum, stuðning og fræðslu. Námskeiðið verður í umsjá íþróttafræðings sem sér um hreyfiþáttinn og fræðslu þátttakenda námskeiðisins og foreldra.
Námskeiðið felur í sér: Þjálfun í 6 vikur. Tveir tímar í viku, klukkustund í senn, sami tími, sami kennari. Kennsla og stuðningur við rétt fæðuval. Fræðsla og umræðufundir. Líkamsrækt og leikir innanhúss og utan sem og í sölum Heilsuakademíunnar í Egilshöll.
Námskeiðin standa yfir í 6 vikur en ef frístundakortið er nýtt þá þarf að taka tvö námskeið í röð eða 12 vikur.
Heilsuakademían er aðili að Frístundakorti ÍTR