hreyfing, heilbrigði, skemmtun

 


Stofnendur Heilsuakademíunnar: Valdís, Íris Huld, Gyða og Eygló

Heilsuakademían er líkamsræktarstöð í Egilshöll sem býður upp á tækjasal og landsins mesta úrval námskeiða. Einnig er í boði heitur pottur, gufa, barnagæsla, nudd og snyrtistofa.

Heilsuakademían býður upp á fjölbreytilega, heilsusamlega afþreyingu í formi ýmis konar námskeiða fyrir alla þá sem vilja stunda holla og skemmtilega hreyfingu án keppni. Heilsuakademían býður einnig upp á hópefli fyrir fyrirtæki, skemmtanir fyrir vinahópa, gæsanir, steggjanir, barnaafmæli, o.fl.

Heilsuakademían leggur megin áherslu á að veita persónlega þjónustu til að uppfylla þarfir viðskiptavina sinna. Megin starfsemin er í Egilshöllinni þar sem Heilsuakademían býður upp á frábæran tækjasal auk þess að boðið er upp á námskeið í íþróttahúsi Lækjarskóla í Hafnarfirði og sundskóla 2-5 ára í íþróttamiðstöðinni Lágafelli í Mosfellsbæ.

Þau námskeið sem Heilsuakademían býður upp á eru m.a: Herþjálfun á sérútbúninni herþjálfunarbraut, Lífsstílsnámskeið fyrir konur, Fit-Pilates, Pole Fitness, Gymstick, Karlapúl, Rope Yoga, Nordic Walking TRX, Tabata, Scientific Fighting sjálfsvarnarnámskeið, Tarzan námskeið fyrir börn, Breakdans, Eitt L.Í.F. námskeið fyrir börn og unglinga yfir kjörþyngd, dansnámskeið í samstarfi við Dansskóla Birnu Björns, Sundskóla fyrir 2-5 ára o.fl. Einnig eru í boði opnir tímar fyrir alla þátttakendur Heilsuakademíunnar líkt og BodyPump, þrekhring, Spinning o.fl.

Heilsuakademían leggur mikið upp úr faglegum vinnubrögðum og hafa allir kennarar Heilsuakademíunnar hlotið menntun og reynslu á sviði íþrótta og þjálfunar.

Hjá Heilsuakademíunni getur öll fjölskyldan fundið eitthvað við sitt hæfi!